|
|
Í skólanum eru krakkar í 1. – 7. bekk á aldrinum 6-13 ára. Það eru 410 nemendur í Hofsstaðaskóla í ár. Vel er tekið á móti manni á morgnana. Skólinn er opinn og við getum beðið í kennslustofunum þangað til kennsla hefst. Leiðarljós skólans er Vöffin 5. Virðing, vellíðan, Vinnusemi, Verkmennt og Viska (snúa spjöldum) Aðstaða er öll mjög góð í skólanum. Útileiksvæðið er nýtt og stórt og er battavöllurinn er góð viðbót. Hátíðarsalurinn sem við erum í núna hefur fengið andlitslyftingu: Sviðið var endurnýjað, ný tjöld, nýjar tæknisvalir, hljóðkerfið endurnýjað o.s.frv. Íþróttahúsið er alveg uppvið skólann og Tómstundaheimili skólans, Regnboginn hefur fengið flotta aðstöðu í kjallaranum. Hér búum við þröngt en vel.
Ýmsar hefðir hafa skapast í Hofsstaðaskóla, hér gerum okkur margt til skemmtunar til dæmis eru haldin bekkjarkvöld. Árlega eru Þemadagar, skemmtun á sal þar sem allir bekkir fá tækifæri til að verða með atriði að minnsta kosti einu sinni á ári. Skipt er í yngri og eldri þ.e. yngri deildin kemur saman á fimmtudögum og eldri deildin á föstudögum. Nemendur í 1.-6. bekk hittast auk þess einu sinni í viku í samsöng. Haldin eru diskótek hjá eldri deildinni, glæsilegt þorrablót hjá 6. bekk á hverju ári þar sem nemendur sjá um allan undirbúning og bjóða foreldrum sínum í flotta þorraveislu með skemmtiatriðum, hjá 7. bekknum er hápunkturinn Reykjarferð og árshátíð . Hjá yngstu nemendunum er 100 daga hátíð en eins og nafnið gefur til kynna fer hún fram þegar krakkarnir hafa verið 100 daga í skólanum. Auk þess eru ýmsir aðrir atburðir fyrir allan skólann s.s. íþróttadagur og svo mæti lengi telja.
Þetta er fólkið sem vinnur í skólanum okkar. Af listanum sjáið þið að hér starfar fjöldi vel menntaðs fólks.
Regnboginn er tómstundaheimili fyrir börn í 1. – 4. bekk. Mikið er hægt að gera í Regnboganum m.a. aðstaða fyrir dúkkukrók, perla, lita, lesa og auðvitað ef vel viðrar þá er krökkunum hleypt út að leika. Regnboginn hefur leikhóp sem heitir Regndroparnir, en þau gera allskonar leikrit, dans og o.s.frv. og þegar það er tilbúið er haldin sýning fyrir foreldra.
Kennslan er fjölbreytt og skemmtileg. Nemendur í yngri deild og eldri deild eru með sitthvora stundaskrána. Við erum ekki saman í frímínútum og matartímum. Hver bekkur á sína heimastofu en síðan er árganginum skipt í minni hópa í list- og verkgreinum og hringekju. Í eldri deildinni er nemendum einnig skipt í hópa í færnimiðuðu námi í stærðfræði og ensku. Og já krakkarnir í 1. bekk byrja strax í list og verkgreinum, læra á tölvur og ensku…. Rannveig: “En bíddu en enskukennsla í 1. bekk!! Er það ekki bara eitthvað rugl? Þurfa þessir krakkar ekki fyrst að læra íslensku? Óskar: Jú jú Rannveig mín! þau læra auðvitað íslensku, fá allskonar málörvun, læra stafina og að lesa Rannveig: Já þau eru náttúrulega svo klár þessir krakkar, þau eru alveg eins og svampar sem draga allt í sig þegar þau eru svona ung og fersk. Þannig að það er alveg hægt að kenna þeim ýmislegt strax. Guðrún Lóa: Já ég hef séð þau í tölvutíma þau eru bara klár Kristín Sif: Já og ég kíkti inn í enskutíma hjá þeim og fékk að sjá hvernig þau læra ensku Breki: Það langar mig að sjá, kíkjum á það.
Hver bekkur fer einu sinni í viku í tölvustofuna. Þar fáum við fræðslu um hvernig skal vinna við tölvur. Okkur er kennt á fjölda forrita til dæmis Vefsíðugerð, tölvupóst, paint, word, exel, powerpoint, publisher og lögð er áheyrsla á góða vélritun.Við erum með hágæða tölvustofu sem er með 26 nemendatölvum og einni kennaratölvu. Svo erum við líka með gagnvirka kennslutöflu í tölvustofunni. Við erum með tölvuloft fyrir ofan bókasafnið sem er með 12 nemendatölvum og einni kennaratölvu. Svo erum við líka með fartölvuvagn sem er með 15 fartölvum. Fartölvuvagninn er hægt að keyra í stofur og við notum hann mikið í ýmiskonar verkefni m.a. Landafræði, ensku, íslensku, dönsku og mikið meira. Tæknihópurinn lærir að stýra sýningum á sal, aðstoðar við ýmis tæknimál og kynningar eins og þessa. Við í Hofsstaðaskóla höfum keypt í gegnum árin myndatökuvélar, myndavélar, skjávarpa o.s.frv. sem við notum mjög mikið. Svo eigum við líka tvær aðrar gagnvirkar kennslutöflur í stofunum hjá 4. bekk og erum að safna okkur fyrir fleiri svoleiðis töflum. Breki: Bíddu gagnvirkar hvað? Kristín Sif: Kennslutöflur Óskar: Ég held við verðum að sýna fólkinu aðeins hvað við erum að tala um. Hvernig er hægt að nota þær Rannveig: Hvað er að þér Óskar þau eru nú ekki svo gömul Guðrún Lóa: Já ég held að þau viti alveg hvað við erum að tala um Óskar: Sýnum þeim bara pínku smá fyrst við Breki erum búnir að puða við að klippa þetta myndbrot
Vefur skólans er opinn öllum. Þar getið þið séð fréttir úr skólanum, myndir, um starfsfólk og fleira. Mentor er hinsvegar um barnið þitt, þar getið þið séð allar upplýsingar sem þið þurfið um barnið t.d. hvernig það hegðar sér, heimanám, einkunnir o.s.frv. Auðvitað fá foreldrar sendan heim tölvupóst um fundi, skólabyrjun, skólaslit og annað markvert sem er að gerast í skólanum hverju sinni. En samt þótt tæknin sé mikil í Hofsstaðaskóla þá eru mannleg samskipti enn í gangi, viðtalstímar hjá kennurum og foreldrar ásamt nemendum boðaðir til fundar hjá umsjónarkennara til að ræða námið. Skólinn er alltaf opinn og foreldrar velkomnir.
Við erum mjög stolt af bókasafninu okkar. Við erum með nákvæmlega 11.971 titil. Bókasafnsvörðurinn hún Gréta veit hvar allar bækur er að finna og pantar bækur eftir þörfum. Á bókasafninu er kósý og huggulegt og þangað er gott að koma til Grétu að lesa heimsmetabókina. Við nemendurnir í Hofsstaðaskóla erum greinilega mjög dugleg að lesa því útlánin hafa verið ansi mikil.
Eins og fram hefur komið er skipt í minni hópa í List-og verkgreinum Nemendum í 1. - 7. bekk er skipt í 10-12 manna hópa. Kennt er í lotum og skipta nemendur um námsgrein 4 til 5 sinnum á vetri. Árganginum er blandað saman og gefur það okkur tækifæri til að kynnast krökkunum í hinum bekkjunum betur.
Í heimilisfræði lærum við að umgangast eldhúsið og um allt sem tengist eldamennsku. Við eldum og bökum og fáum að fara með afurðirnar heim til mömmu og pabba til að gefa þeim að smakka. Hún Áslaug ræður ríkjum í skólaeldhúsinu.
Í textíl er kennt að sauma, prjóna, hekla og sníða. Oft er textíllinn vinsæl jóla eða afmælisgjöf. Kennarinn heitir Ester en hún kennir líka dönsku í sjöunda bekk
Í vetur hefur hún Unnur kennt okkur myndmennt því Sólrún fór í námsleyfi að læra meira í teikningum.
Í smíði lærum við að búa til ýmsa hluti sem oft eru notaðir í gjafir. í smíðastofunni er líka kennd nýsköpun. Kennarinn heitir Sædís.
Nýsköpun er mjög virk í Hofsstaðaskóla. Við höfum fengið góða þátttöku í árlegri keppni sem haldinn er um allt land. Við settum þátttökumet í fyrra, við erum mjög stolt af því. Í 5. bekk byrjum við í nýsköpun. Við finnum hugmyndir og teiknum og skrifum um þær á veggspjald og það er hengt upp á vegg. Eftir það fáum við hvítt blað sem fer í stóru keppnina þar skrifum við um hugmyndina og helstu upplýsingar um okkur. Í 5. bekk er nýsköpunarkeppni. Þeir sem fá bestu hugmyndina geta fengið stór verðlaun t.d. Ipod, gsm síma eða myndavél.
Íþrótta og sundkennslan fer fram í Mýrinni, þar höfum við stóra og góða aðstöðu. Sundlaugin er 16 m og ekki spillir fyrir að íþróttahúsið er alveg upp við skólann. Þegar kennararnir Ragga Dís og Hreinn eru í góðu skapi fáum við að fara í flotta heita pottinn. Íþróttasalnum er hægt að skipta í tvennt því hann er mjög stór. Hver árgangur fer2 sinnum í viku í íþróttir og gerir eitthvað skemmtilegt í hvert skipti. Við erum mjög ánægð með sundlaugina og íþróttasalinn.
Í skólanum er heitur matur í hádeginu. Maturinn kemur frá Heitt og Kalt. Hægt er að vera í áskrift alla daga en það er líka hægt að vera bara suma daga. Líka er hægt að vera í mjólkuráskrift. Við erum með 2 samlokugrill, 2 örbylgjuofna og einn stóran hitabrúsa fyrir þá sem koma með núðlur. Hægt er að fá síðdegishressingu sem kostar 130 kr. Þannig að enginn sveltur í Hofsstaðaskóla.
Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Við höfum haft grænfánan í þrjú ár. Það er mikill heiður að hafa Grænfána. Umhverfisnefnd er einnig starfandi í skólanum, kennarar, foreldrar og nemendur tala saman um umhverfið og reyna að endurvinna allt sem hægt er. Við biðjum foreldra að krakkar komi með nestisbox og vatn eða svala í brúsa, ef það er komið með mjólkurafurðir þá eru krakkar vinsamlegast beðnir að fara með umbúðirnar heim aftur.
Skólaráð Við skólann er starfandi skólaráð, þar eiga starfsmenn, foreldrar og nemendur sinn fulltrúa. í framtíðinni verða nemendafulltrúar kosnir af nemendum í 6. og 7. bekk. Skólaráðið er vettvangur okkar nemenda til að koma hugmyndum á framfæri.
Í könnun sem lögð var fyrir nemendur í 4. – 7. bekk í desember 2008 voru nemendur spurðir um hvort þeir héldu að foreldrar þeirra væru ánægðir með skólann. Eins og sést á þessu myndriti þá töldu 92% nemenda að foreldrar þeirra væru oftast eða frekar oft ánægðir með skólann. Við viljum því ánægð bjóða ykkur að ganga um skólann okkar með okkur og skoða og spyrja spurningar.
Skólinn Okkar
Skólinn okkar 1. – 7. bekkur. Skólaárið 2009 – 2010 eru um 410 nemendur. Skólinn opnar 8:00 en kennsla hefst 8:30 Yfirleitt eru 3 bekkir í árgangi Um 20 nemendur í hverjum bekk Leiðarljós skólans er V-5 Aðstaða er öll mjög góð í skólanum. Gott útileiksvæði Samkomusalurinn hefur fengið andlitslyftingu Íþróttahúsið Mýrin Tómstundaheimilið Regnboginn
Battavöllur Íþróttadagur í íþróttahúsi Útileiksvæði Skemmtun á sal – 2. I.S. skemmtir
Hefðir og Hátíðir Mikið er um hefðir í skólanum t.d. Bekkjarkvöld Þemadagar Samsöngur og salur 100 daga hátíð Bangsadagurinn Þorrablót fyrir 6.bekk Árshátíð fyrir 7.bekk Jólaball Fjölgreindaleikar Íþróttadagur Vor-og vettvangsferðir
Starfsfólk Í skólanum starfa: Skólastjórnendur Kennarar Sérkennarar Þroskaþjálfar Stuðningsfulltrúar Skólaliðar Námsráðgjafi Hjúkrunarfræðingur Ritari Bókasafnsfræðingur Forstöðumaður tómstundaheimilis Sálfræðingur Kennsluráðgjafi í upplýsingatækni Tölvuumsjónarmaður
Regnboginn Regnboginn er tómstundaheimilli fyrir börn sem vilja eða geta ekki farið heim beint eftir skóla. Mikið er hægt að gera. Þau hafa leikhóp-Regndroparnir Boðið er upp á síðdegishressingu Gréta er umsjónarmaður Regnbogans.
Kennslan Yngri deild (1. – 4. bekkur) eldri deild (5-7. bekkur) Stundatafla yngri og eldri deildar er tvískipt, við erum ekki saman í mat og frímínútum. Blöndun nemenda í list og verkgreinum og hringekju Árgöngum er skipt upp í stærðfræði og ensku í eldri deild. Áhersla á list og verkgreinar Tölvukennsla hefst í 1. bekk. Enskukennsla hefst í 1. bekk Ábyrgð nemenda- góð umgengni. Umsjónarmenn þrífa í matsalnum og sópa stofur.
Enskukennsla í 1. bekk
21. Öldin í Hofsstaðaskóla Hágæða tölvustofa. Gagnvirkar kennslutöflur Tölvuloft fyrir ofan bókasafn Fartölvuvagn Tæknihópur Myndatökuvélar Myndavélar Skjávarpar Ein tölva í hverri kennslustofu Kennarar með fartölvu
Gagnvirkar kennslutöflur
Samskipti við heimilin Vefur skólans Mentor.is Tölvupóstur Viðtalstímar Foreldra- og nemendaviðtöl Foreldrar alltaf velkomnir í skólann
Bókasafnið Það eru tæplega 12.000 bækur, tímarit og geisladiskar. Á bókasafninu eru margar fræðslu- og gamanmyndir ef tími fellur niður. Tölvuloftið er fyrir ofan bókasafnið. Bókasafnsvörðurinn heitir Gréta Það er kósí og huggó á bókasafninu Útlán mikil
List og verk Hópaskipting í list og verkgreinum Myndmennt Smíði Textílmennt Heimilisfræði Sund Það eru fáir í hóp hóp Búnir eru til hlutir og færðir heim.
Heimilisfræði Hér læra krakkarnir að umgangast eldhúsið og allt sem tengist eldamennsku. Krakkarnir koma svo með afurðirnar heim og leyfa foreldrum að smakka. Kennarinn heitir Áslaug.
Textílmennt Byrjað er að kenna textílmennt strax í 1. bekk Allir fara í textílmennt Kennarinn heitir Ester
Myndmennt Hér lærum við krakkarnir að teikna,lita, leira og mála. Öll verk eru tekin heim í lok tímanna. Kennarinn heitir Unnur.
Smíði Í smíðum lærum við að búa til ýmsa hluti sem oft eru notaðir í gjafir Hér er líka unnið að nýsköpun. Kennarinn heitir Sædís
Nýsköpun Nýsköpun er mjög virk í Hofsstaðaskóla Höfum unnið til verðlauna Nýsköpunarkeppni í 5. bekk 1. – 7. bekkur tekur líka þátt.
Fjöldi viðurkenninga fyrir nýsköpun
Íþrótta- og sundkennsla Leikfimi og sundkennsla er í Mýrinni Flottur heitur pottur Hægt er að skipta salnum. Hver árgangur fer tvisvar í viku. Kennararnir heita Ragga Dís og Hreinn.
Allir þurfa að borða Matur frá Heitt og Kalt Hægt að hita matinn í skólanum, grill, örbylgjuofn. Mjólkuráskrift Alltaf er vatnskanna á borðinu. Ein máltíð kostar 428 kr. Síðdegishressing Matur er frá 11 - 13
Grænfáninn Grænfáni Hofsstaðaskóla Grænfáninn er umhverfismerki Við höfum haft hann í 3 ár Við höfum umhverfisnefnd í skólanum
Skólaráð Skólaráð Skólaráð Hofsstaðaskóla var formlega stofnað 17. nóvember 2008. Í skólaráði sitja fulltrúar kennara, foreldra og nemenda
Heldur þú að foreldrar þínir séu ánægðir með skólann?
Takk fyrir okkur Óskar Þór Alexander Breki Rannveig Eva Kristín Sif Guðrún Lóa
Summary: Kynning sem haldin var í Hofsstaðaskóla fyrir foreldra barna sem eru að hefja skólagöngu (fædd 2004).%d%aKynningin var unnin af fimm nemendum í 5. - 7. bekk: Óskar Þór, Breki, Rannveig, Guðrún Lóa og Kristín Sif.
| URL: |
No comments posted yet
Comments