|
|
Í skólanum eru krakkar í 1. – 7. bekk á aldrinum 6-13 ára. Það eru um 430 nemendur í Hofsstaðaskóla í ár. Vel er tekið á móti manni á morgnana. Skólinn er opinn og við getum beðið í kennslustofunum þangað til kennsla hefst. Við viljum sérstaklega benda fólki að skoða hér á eftir glæsilegt listaverk á gangi skólans sem unnið er af nemendum. Listaverkið sýnir leiðarljósið okkar vöffin fimm. Virðing- vellíðan-Vinnusemi- Verkmennt og Viska
Aðstaða er öll mjög góð í skólanum, hátíðarsalur búinn nýjustu tækni, útileiksvæðið er stórt og er battavöllurinn þar sem við getum spilað fótbolta góð viðbót. Íþróttahúsið er alveg upp við skólann og tómstundaheimili skólans Regnboginn er með aðstöðu í skólanum og nýtir til dæmis salinn, tölvustofuna o.fl.
Ýmsar hefðir hafa skapast í Hofsstaðaskóla. Hér gerum okkur margt til skemmtunar til dæmis eru haldin bekkjarkvöld, fjölgreindaleikar eru árlega og Þemadagar. Á hverju ári fá allir bekkir tækifæri til að vera með atriði á sal. Skipt er í yngri deild og eldri deild. Yngri deildin kemur saman á fimmtudögum og eldri deildin á föstudögum.
Nemendur í 1.-4. bekk og 5. – 7. bekk hittast auk þess aðra hverja viku í samsöng. Hjá yngstu nemendunum er 100 daga hátíð en eins og nafnið gefur til kynna fer hún fram þegar krakkarnir hafa verið 100 daga í skólanum.
Við höfum líka Bangsadag á bókasafninu en þá koma allir yngri krakkarnir með uppáhalds bangsana sína og eldri nemendur lesa fyrir yngri börnin.
Haldin eru Diskótek hjá eldri deildinni, glæsilegt þorrablót hjá 6. bekk á hverju ári þar sem nemendur sjá um allan undirbúning og bjóða foreldrum sínum í flotta þorraveislu með skemmtiatriðum.
Hjá 7. bekknum er Halloweenball (Hrekkjavökudansleikur) í tengslum við enskukennsluna, en þá bjóða þau jafnöldum sínum úr öðrum skólum bæjarins.
Hápunkturinn er svo að sjálfsögðu ferðin í skólabúðirnar á Reykjum í Hrútafirði og árshátíð. Auk þess eru ýmsir aðrir atburðir fyrir allan skólann s.s. íþróttadagur og svo mætti lengi telja.
Þetta er fólkið sem vinnur í skólanum okkar. Af listanum sjáið þið að hér starfar fjöldi vel menntaðs fólks.
Regnboginn er tómstundaheimili fyrir börn í 1. – 4. bekk. Í Regnboganum er fjölbreytt dagskrá. Hægt er að nálgast upplýsingar um Regnbogann á vef skólans en Regnboginn gefur m.a. út fréttabréf og birtir fréttir og myndir úr starfinu.
Kennslan er fjölbreytt og skemmtileg. Nemendur í yngri deild og eldri deild eru með sitthvora stundaskrána, það er við erum ekki saman í frímínútum og matartímum. Hver bekkur á sína heimastofu en síðan er árganginum skipt í minni hópa í list- og verkgreinum og hringekju. Í eldri deildinni er nemendum einnig skipt í hópa í færnimiðuðu námi í stærðfræði og ensku.
Ragnar Loki: “En bíddu er enskukennsla í 1. bekk!! Er það ekki bara eitthvað rugl? Þurfa þessir krakkar ekki bara fyrst að læra íslensku? Kristófer: Jú jú þau læra auðvitað íslensku, fá allskonar málörvun, læra stafina og lesa Inga: Já þau eru náttúrulega svo klár þannig að það er alveg hægt að kenna þeim ýmislegt annað strax. Hafrún: Já ég hef séð þau í tölvutíma þau eru bara Ástrós: Já og ég kíkti inn í enskutíma hjá þeim og fékk að sjá hvernig þau læra ensku Nonni: Það langar mig að sjá, kíkjum á það.
Hver bekkur fer einu sinni í viku í tölvustofuna. Þar fáum við fræðslu um hvernig skal vinna við tölvur. Okkur er kennt á fjölda forrita til dæmis Vefsíðugerð, tölvupóst, paint, word, exel, powerpoint, publisher og lögð er áheyrsla á góða vélritun. Við erum með hágæða tölvustofu. Svo erum við líka með gagnvirka kennslutöflu í tölvustofunni. Við erum með tölvuloft fyrir ofan bókasafnið. Við erum líka með fartölvuvagn. Fartölvuvagninn er hægt að keyra í stofur og við notum hann mikið í ýmiskonar verkefni m.a. Landafræði, ensku, íslensku, dönsku og mikið meira. Nemendur læra að stýra sýningum á sal, aðstoða við ýmis tæknimál og kynningar eins og þessa. Við í Hofsstaðaskóla höfum keypt í gegnum árin myndatökuvélar, myndavélar, skjávarpa o.s.frv. sem við notum mjög mikið. Svo eigum við líka fjórar aðrar gagnvirkar kennslutöflur, tvær í kennslustofum og tvær eru færanlegar á hjólum. Svo erum við svo heppin að foreldrafélagið styður vel við bakið á okkur og er að safna fyrir fleiri töflum. Ragnar Loki: Bíddu gagnvirkar hvað? Kristófer: Kennslutöflur Inga: Ég held við verðum að sýna fólkinu aðeins hvað við erum að tala um. Hvernig er hægt að nota þær Iðunn: Já það vita ekki endilega allir hvernig þetta virkar Ástrós: Hvað er að ykkur krakkar þau eru nú ekki svo gömul Hafrún: Já ég held að þau viti alveg hvað við erum að tala um Nonni: Sýnum þeim bara smá fyrst ég er búin að puða við að klippa þetta myndbrot
Vefur skólans er opinn öllum. Þar getið þið séð fréttir úr skólanum, myndir, upplýsingar um starfsfólk og fleira. Mentor er hinsvegar um barnið þitt, þar getið þið séð allar upplýsingar sem þið þurfið um barnið t.d. hvernig það hegðar sér, heimanám, einkunnir o.s.frv. Auðvitað fá foreldrar sendan heim tölvupóst um fundi, skólabyrjun, skólaslit og annað markvert sem er að gerast í skólanum hverju sinni. En samt þótt tæknin sé mikil í Hofsstaðaskóla þá eru mannleg samskipti enn í gangi. Foreldrar eru ásamt nemendum boðaðir tvisvar á ári til fundar hjá umsjónarkennara til að ræða námið. Skólinn er alltaf opinn og foreldrar velkomnir.
Við erum mjög stolt af bókasafninu okkar. Við erum með um það bil 12.500 titla. Bókasafnsvörðurinn hún Gréta veit hvar allar bækur er að finna og pantar bækur eftir þörfum. Á bókasafninu er kósý og huggulegt og þangað er gott að koma til Grétu að lesa heimsmetabókina. Við nemendurnir í Hofsstaðaskóla erum greinilega mjög duglegir að lesa því útlánin hafa verið ansi mikil.
Í tónmennt lærum við texta, lesum nótur, notum hljóðfæri og syngjum. Stundum fáum við að fara í leiki. Hún Unnur kennir okkur tónmennt.
Búið er að endurvekja skólakórinn okkar. Kórinn er mjög vinsæll, sérstaklega hjá stelpunum. Okkur vantar stráka. Kórinn æfir einu sinni í viku. Hann fer á kóramót og setur upp skemmtilegan söngleik. Unnur tónmenntakennari stjórnar kórnum.
Eins og fram hefur komið er skipt í minni hópa í List-og verkgreinum Nemendum í 1. - 7. bekk er skipt í 10-12 manna hópa. Kennt er í lotum og skipta nemendur um námsgrein 4 til 5 sinnum á vetri. Árganginum er blandað saman og gefur það okkur tækifæri til að kynnast krökkunum í hinum bekkjunum betur.
Í heimilisfræði lærum við að umgangast eldhúsið og um allt sem tengist eldamennsku. Við eldum og bökum og fáum að fara með afurðirnar heim til mömmu og pabba til að gefa þeim að smakka. Hún Áslaug ræður ríkjum í skólaeldhúsinu.
Í textíl er kennt að sauma, prjóna, hekla og sníða. Oft er textíllinn vinsæl jóla eða afmælisgjöf. Kennarinn heitir Ester en hún kennir líka dönsku í sjöunda bekk
Í myndmennt lærum við krakkarnir að teikna, lita, leira, mála og margt fleira. Kennarinn heitir Sólrún.
Í smíði lærum við að búa til ýmsa hluti sem oft eru notaðir í gjafir. Í 6. bekk er árlega haldin lampakeppni. Þá gefst okkur tækifæri til að nýta hugmyndaflugið og hanna lampa. Við eigum að endurnýta hluti og nota verðlítið efni. Sett er upp sýning á lömpunum í skólanum og veitt eru vegleg verðlaun. Í skólanum er líka kennd nýsköpun. Kennarinn heitir Sædís.
Nýsköpun er mjög virk í Hofsstaðaskóla. Í 5. bekk byrjum við í nýsköpun. Við höfum fengið góða þátttöku í árlegri keppni sem haldinn er um allt land. Við höfum síðastliðin tvo ár sett þátttökumet og fengið Gullbikarinn. Við erum mjög stolt af því. Við finnum hugmyndir og teiknum og skrifum um þær á veggspjald og það er hengt upp á vegg. Eftir það fáum við hvítt blað sem fer í stóru keppnina þar skrifum við um hugmyndina og helstu upplýsingar um okkur. Í 5. bekk er nýsköpunarkeppni. Þeir sem fá bestu hugmyndina geta fengið stór verðlaun t.d. Ipod, gsm síma eða myndavél.
Íþrótta og sundkennslan fer fram í Mýrinni, þar höfum við stóra og góða aðstöðu. Ekki spillir fyrir að íþróttahúsið er alveg upp við skólann. Þegar kennararnir Ragga Dís og Hreinn eru í góðu skapi fáum við að fara í flotta heita pottinn. Íþróttasalnum er hægt að skipta í tvennt því hann er mjög stór. Hver árgangur fer 2 sinnum í viku í íþróttir og gerir eitthvað skemmtilegt í hvert skipti. Við erum mjög ánægð með sundlaugina og íþróttasalinn.
Í skólanum er heitur matur í hádeginu. Maturinn kemur frá Heitt og Kalt. Hægt er að vera í áskrift alla daga en það er líka hægt að vera bara suma daga. Líka er hægt að vera í mjólkuráskrift. Við erum með samlokugrill, örbylgjuofna og stóra hitabrúsa fyrir stóru krakkana sem mega koma með núðlur. Hægt er að fá síðdegishressingu sem kostar 130 kr. Þannig að enginn sveltur í Hofsstaðaskóla.
Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Við höfum haft grænfánan í rúm þrjú ár. Það er mikill heiður að hafa Grænfána. Umhverfisnefnd er einnig starfandi í skólanum. Kennarar, foreldrar og nemendur tala saman um umhverfið og reyna að endurvinna allt sem hægt er. Við biðjum foreldra að krakkar komi með nestisbox og vatn eða svala í brúsa, ef það er komið með mjólkurafurðir þá eru krakkar vinsamlegast beðnir að fara með umbúðirnar heim aftur. Núna í febrúar 2011 undirrituðu Garðabær, Fjölbrautaskóli Garðabæjar og Hofsstaðaskóli samstarfssamning um að skólarnir taki Arnarneslækinn í fóstur frá uppsprettu til ósa. Þetta er aðeins eitt að fjölmörgum spennandi verkefnum í tengslum við umhverfið og umhverfisvernd.
Við skólann er: Nemendafélag, foreldrafélag og skólaráð. Stjórn nemendafélagsins heldur fundi 4 sinnum á ári og kýs sína fulltrúa í skólaráð. Gott samstarf er við foreldrafélag skólans. Þess má geta að tækjanefnd foreldrafélagsins hefur síðastliðinn tvö ár staðið fyrir ótrúlega skemmtilegu neonljósabingói til að safna fyrir gagnvirkum töflum fyrir skólann. Bingóið hefur reynst frábær fjölskylduskemmtun og hefur aðsóknin verið ótrúleg , fullt út úr dyrum í bæði skiptin.
Í könnun sem lögð var fyrir foreldra nemenda skólans í nóvember 2010 voru foreldrarnir m.a. spurðir að því hvort þeir teldu að nemendur fengju tækifæri til að taka þátt í verkefnum sem hvetja til skapandi og sjálfstæðrar hugsunar. Eins og sést á myndritinu þá voru 89% foreldra Mjög sammála eða Sammála því.
Nú er kynningunni lokið. Við þökkum fyrir okkur. Við viljum bjóða ykkur að spyrja okkur spurninga. Eftir það bjóðum við ykkur að ganga með okkur um skólann og skoða aðstöðuna.
Skólinn Okkar
Skólinn okkar 1. – 7. bekkur Skólaárið 2010 – 2011 eru um 430 nemendur Skólinn opnar 8:00 en kennsla hefst 8:30 Yfirleitt eru tveir til þrír bekkir í árgangi Um 20 nemendur í hverjum bekk Leiðarljós skólans er Vöffin fimm
Virðing
Vinnusemi
Vellíðan
Verkmennt
Viska
Aðstaða Aðstaða er öll mjög góð í skólanum Hátíðarsalur búinn nýjustu tækni Gott útileiksvæði Íþróttahúsið Mýrin við hlið skólans Tómstundaheimilið Regnboginn í húsnæði skólans og nýtir t.d. sal, tölvustofu o.fl.
Hefðir og Hátíðir Mikið er um hefðir í skólanum t.d. Bekkjarkvöld Þemadagar/Fjölgreindaleikar Samsöngur og salur 100 daga hátíð Bangsadagurinn Diskótek Vímuvarnarhlaupið Þorrablót fyrir 6.bekk Árshátíð fyrir 7.bekk Jólaball Íþróttadagur Vor-og vettvangsferðir
Kátir krakkar á 100 daga hátíð
Bangsadagur
Þorrablót
Halloweenball og árshátíð
Skólabúðirnar á Reykjum
Starfsfólk Í skólanum starfa: Skólastjórnendur Kennarar Skólaliðar Hjúkrunarfræðingur Sérkennarar Þroskaþjálfar Kennsluráðgjafi í upplýsingatækni Tölvuumsjónarmaður Námsráðgjafi Ritari Bókasafnsfræðingur Umsjónarmaður tómstundaheimilis Sálfræðingur Talmeinafræðingur
Regnboginn Regnboginn er tómstundaheimilli fyrir yngstu börnin Fjölbreytt dagskrá Boðið er upp á síðdegishressingu Ýmsar upplýsingar, fréttir og myndir á vef skólans Greta er umsjónarmaður Regnbogans
Kennslan Yngri deild (1. – 4. bekkur) eldri deild (5.-7. bekkur) Stundatafla yngri og eldri deildar er tvískipt, við erum ekki saman í mat og frímínútum Blöndun nemenda í list- og verkgreinum og hringekju Árgöngum er skipt upp í stærðfræði og ensku í eldri deild Áhersla á list og verk greinar Tölvukennsla hefst í 1. bekk. Enskukennsla hefst í 1. bekk Ábyrgð nemenda - góð umgengni Umsjónarmenn þrífa í matsalnum og sópa stofur
Enskukennsla
21. öldin í Hofsstaðaskóla Hágæða tölvustofa Gagnvirkar kennslutöflur Tölvuloft fyrir ofan bókasafn Fartölvuvagn Tæknihópur Myndatökuvélar Myndavélar Skjávarpar Ein tölva í hverri kennslustofu Kennarar með fartölvu
Gagnvirkar kennslutöflur
Samskipti við heimilin Vefur skólans Mentor.is Tölvupóstur Viðtalstímar Foreldra- og nemendaviðtöl Foreldrar alltaf velkomnir í skólann
Bókasafnið Það eru tæplega 12.500 bækur, tímarit og geisladiskar Á bókasafninu eru margar fræðslu og gamanmyndir Tölvuloftið er fyrir ofan bókasafnið Bókasafnsvörðurinn heitir Gréta Það er kósí og huggó á bókasafninu Útlán mikil
Tónmennt Í tónmennt lærum við texta, lesum nótur, notum hljóðfæri og syngjum. Fáum stundum að fara í leiki Kennarinn heitir Unnur
Kór Hofsstaðaskóla Kórinn endurvakinn Mjög vinsælt að taka þátt, sérstaklega hjá stelpunum Æfir einu sinni í viku Unnur tónmenntakennari stjórnar kórnum
List og verk Hópaskipting í list og verkgreinum Myndmennt Smíði Textílmennt Heimilisfræði Sund Það eru 10-14 nemendur í hópi Búnir eru til hlutir og færðir heim
Heimilisfræði Hér læra krakkarnir að umgangast eldhúsið og allt sem tengist eldamennsku. Krakkarnir koma svo með afurðirnar heim og leyfa foreldrum að smakka Kennarinn heitir Áslaug
Textílmennt Í textílmennt lærum við að sauma, prjóna, hekla og sníða Textíllinn er oft vinsæl jólagjöf Kennarinn heitir Ester
Myndmennt Hér lærum við krakkarnir að teikna, lita, leira og mála. Öll verk eru tekin heim í lok tímanna. Kennarinn heitir Sólrún
Smíði Í smíði lærum við að búa til ýmsa hluti sem oft eru notaðir í gjafir Lampakeppni í 6. bekk Hér er líka unnið að nýsköpun. Kennarinn heitir Sædís
Nýsköpun Nýsköpun er mjög virk í Hofsstaðaskóla 1. – 7. bekkur tekur líka þátt. Nýsköpunarkeppni í 5. bekk
Íþrótta- og sundkennsla Leikfimi og sundkennsla er í Mýrinni Flottur heitur pottur Hægt er að skipta salnum Hver árgangur fer tvisvar í viku Kennararnir heita Ragga Dís og Hreinn
Allir þurfa að borða Matur frá Heitt og Kalt Hægt að hita matinn í skólanum, grill, örbylgjuofn Mjólkuráskrift Alltaf er vatnskanna á borðinu Ein máltíð kostar 428 kr. Síðdegishressing Matur er frá 11 - 13
Grænfáninn Grænfáni Hofsstaðaskóla Grænfáninn er umhverfismerki Við höfum haft hann í rúm 3 ár Við höfum umhverfisnefnd í skólanum
Skólaráð Við skólann er: Nemendafélag Foreldrafélag Skólaráð Neonljósbingó foreldrafélagsins 2011
Nemendur fá tækifæri til að taka þátt í verkefnum sem hvetja til skapandi og sjálfstæðrar hugsunar
Takk fyrir okkur Ástrós Ragnar Loki Iðunn Nonni Kristófer Hafrún
Summary: Í mars var haldin kynning á skólanum fyrir foreldra barna sem hefja munu skólagöngu haustið 2011. Það voru nemendur úr 5. og 6. bekk sem sáu um kynninguna.
| URL: |
No comments posted yet
Comments