Glærur Haustsmiðja - nýtt

0

No comments posted yet

Comments

Slide 1

Haustsmiðja 2011 Símenntun kennara 8. – 11. ágúst

Slide 2

Haustsmiðja kennara Tuttugu og eitt námskeið 8. – 11. ágúst Flest haldin í Hagaskóla Flest námskeiðin eru kennurum og skólum að kostnaðarlausu en greiða þarf hluta kostnaðar við nokkur námskeið. Aðeins boðið upp á kaffi, ekki aðrar veitingar á staðnum. Takmarkaður fjöldi þátttakenda á flestum námskeiðum. Nánari upplýsingar og skráning á vef Menntasviðs á tímabilinu 6. - 26. maí. Umsjón með námskeiðum Menntasviðs; Guðrún Edda Bentsdóttir, Hildur Sigurðardóttir og Nanna K. Christiansen.

Slide 3

1. Bekkjarfundir Markhópur: Allir kennarar Tími: 10. ágúst kl. 9:10 – 14:20 Staður: Hagaskóli Fjöldi kennslustunda: 6 Kennari: Ingileif Ástvaldsdóttir skólastjóri Þelamerkurskóla Lýsing: Á námskeiðinu verður farið yfir eftirtalda þætti: markmið, notagildi, framkvæmd og innihald bekkjarfunda. Notast verður við umræður, fyrirlestra, hagnýt verkefni og æfingar sem allt á að miða að því að þátttakendur fái sem mesta innsýn í ramma og form fundanna ásamt því að þjálfast í að halda slíka fundi. Þátttökugjald: 0 kr.

Slide 4

2. Lestur og ritun til náms Markhópur: Kennarar á mið- og unglingastigi Tími: Hefst 8. ágúst kl. 8:30 – 15:50 Staður: Hagaskóli Fjöldi kennslustunda: 30 klst. Kennarar: Guðmundur Engilbertsson, Jenný Gunnbjörnsdóttir og Þóra Rósa Geirsdóttir, sérfr. HA Lýsing: Á námskeiðinu verður fjallað um lestur og nám, helstu einkenni lesskilningsaðferða, samræðu til náms, ritun, námserfiðleika vegna leshömlunar og hvað er til ráða og mat á læsi. Fyrirkomulag er sambland af fyrirlestrum, lestri þátttakenda, umræðum, námssmiðju/æfingum og kynningum á starfi á vettvangi. Þátttökugjald: 15.000.-

Slide 5

3. Fjölbreytni lífvera Markhópur: Kennarar á mið- og unglingastigi Tími: 10. og 11. ágúst kl. 8:30 – 12:20 báða dagana Staður: Hagaskóli Fjöldi kennslustunda: 10 Kennari: Hrefna Sigurjónsdóttir prófessor á Menntavísindasviði Lýsing: Fjallað stuttlega um endurskoðun á flokkunarkerfi lífvera. Rætt um áherslur nýrrar námskrár um sjálfbæra þróun þar sem  mikilvægi  líffjölbreytni  er eitt af viðfangsefnunum. Hvernig kennarar geti fjallað um efnið á áhugaverðan hátt og aukið þar með umhverfisvitund nemenda. Vettvangsferð: Í ferðinni verður lögð áhersla á að þátttakendur upplifi fjölbreytileikann á eiginn skinni og fái hugmyndir sem geta nýst í útikennslu.   Þátttökugjald: 0 kr.

Slide 6

4. Rafmagnsfræði Markhópur: Raungreinakennarar á unglingastigi Tími: 9. - 11. ágúst kl. 9:10 – 15:50 Staður: Hagaskóli Fjöldi kennslustunda: 24 klst. Kennari: Flemming Madsen, kennari við Fjölbrautaskóla Vesturlands og námsefnishöfundur Lýsing: Fjallað verður um grundvallaratriði í rafmagns-fræði og hvernig rafmagn vinnur sem orkugjafi og boðberi rafeindamerkja. Verkefnavinna með smíði rafmótors og rafeindarásar. Þátttakendur fá afhenta bókina „Rafmagn“ sem kemur út haustið 2011. Þátttökugjald: kr. 8.000.

Slide 7

5. Umsjónarkennarinn Markhópur: Umsjónarkennarar Tími: 11. ágúst kl. 8:30 – 12:20 Staður: Hagaskóli Fjöldi kennslustunda: 5 Kennari: Edda Kjartansdóttir verkefnastjóri á Menntavísindasviði og Haraldur Finnsson fyrrum skólastjóri Lýsing: Farið yfir hlutverk, ábyrgð og vinnubrögð umsjónarkennara og til hvers er ætlast af umsjónarkennurum í lögum og reglugerðum varðandi ábyrgð og verkaskiptingu í samskiptum við heimili nemenda. Þátttakendum verða kynnt verkfæri sem nýtast vel til að byggja upp jákvæðan bekkjaranda og uppbyggilegt námsumhverfi fyrir nemendur. Þátttökugjald: 0 kr.

Slide 8

6. Verkleg eðlisfræði Markhópur: Kennarar í eðlisfræði Tími: 9. 10. og 11. ágúst kl. 8:30 – 15:00 alla dagana Staður: Árbæjarskóli, eðlisfræðistofa E–3 Fjöldi kennslustunda: 24 Kennarar: Eggert J. Levy og Arnór Árnason kennarar við Árbæjarskóla Námskeiðslýsing: Fræðileg umfjöllun um verklega eðlisfræði í grunnskóla og mikilvægi hennar. Rætt um vinnubrögð í tilraunum, farið vandlega í frágang verkefna, skýrslugerð og námsmat. Innlagnir, stuttar kynningar og hópavinna. Þátttökugjald: 1000 kr. efnisgjald.

Slide 9

7. Kvikmyndalæsi Markhópur: Allir kennarar Tími: 10. og 11. ágúst kl. 8:30 – 11:30 báða dagana Staður: Hagaskóli og Myndverið í Hvassaleitisskóla Fjöldi kennslustunda: 8 Kennari: Halla Kristín Einarsdóttir kvikmyndagerðarmaður og menningarmiðlari, Marteinn Sigurgeirsson og Erla Stefánsdóttir hjá Myndveri grunnskólanna Lýsing:Fyrri morguninn verður fjallað um kvikmyndalæsi og hvernig má nálgast það í skólum, um kvikmyndagreiningu, hugtök og miðlaumhverfi en seinni morguninn verður kennd upptökutækni og klipping. Þátttökugjald: 0 kr.

Slide 10

8. Lesröskun og áhrif á nám Markhópur: Sérkennarar og deildarstjórar sérkennslu Tími: Byrjun september 2011 Staður: Auglýst síðar Fjöldi kennslustunda: 8 Kennari: Þóra Rósa Geirsdóttir, sérfræðingur HA Lýsing: Fjallað um skipulag skólastarfs og nýtingu mannauðs skóla til að koma til móts við þarfir nemenda með lesröskun, greiningar og eftirfylgni, o.fl. Þátttökugjald: kr. 5.000.-

Slide 11

9. Námserfiðleikar vegna lesröskunar Markhópur: Allir kennarar Tími: Byrjun september 2011 Staður: Auglýst síðar Fjöldi kennslustunda: 8 Kennari: Þóra Rósa Geirsdóttir, sérfræðingur HA Lýsing: Fjallað verður um leiðir í skólastarfi til að stuðla að námi nemenda með lesröskun og hvers konar kennsluhættir skila nemendum með lesröskun bestum árangri í námi. Þátttökugjald: kr. 5.000.-

Slide 12

10. Kennsluaðferðir í skóla margbreytileikans Markhópur: Allir kennarar Tími: 9. og 10. ágúst kl. 8:30 – 13:40 báða dagana Staður: Hagaskóli Fjöldi kennslustunda: 12 Kennarar: Ásdís Hallgrímsdóttir, Ölduselsskóla Borghildur Sigurðardóttir, Réttarholtsskóla Hulda Karen Daníelsdóttir, Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða Kristín Hjörleifsdóttir, Fellaskóla Lýsing: Á námskeiðinu verða þátttakendur fræddir um PALS lestrarnálgun og 6+1 vídd ritunar. Þeir fá einnig þjálfun í stöðvavinnu, gerð og notkun risabóka, samvinnunámsleiðum og fleiri leiðum sem eru hagnýtar og nýtast vel í skóla margbreytileikans. Þátttökugjald: 0 kr.

Slide 13

11. Námsáætlanir og námsmat Markhópur: Kennarar í grunnskólum Reykjavíkur sem vinna að markmiðssetningu, námsáætlunum eða námsmati Tími: 13 – 15:50 Staður: Hagaskóli Fjöldi kennslustunda: 4 Kennari: Andrea Gunnarsdóttir hjá Mentor Lýsing: Kynntar einingarnar Leiðsagnarmat og Námsframvinda sem Mentor hefur þróað og hvernig þær nýtast við að skrá námsmarkmið, námsáætlanir, framvindu náms hjá hópum og einstaklingum ásamt því að meta og skrá stöðu og líðan nemenda. Þátttökugjald: 0

Slide 14

12. Stærðfræðikennsla Markhópur: Kennarar á öllum stigum sem kenna stærðfræði Tími: 11. ágúst kl. 8:30 – 13:20 Staður: Hagaskóli Fjöldi kennslustunda: 6 Kennarar: Jónína Vala Kristinsdóttir lektor við Menntavísindasvið, Kristjana Skúladóttir og Margrét Ásgeirsdóttir, Melaskóla og Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir, Rimaskóla. Lýsing: Fjallað verður um áherslur aðalnámskrár í stærðfræði. Eftir það verður þátttakendum á námskeiðinu skipti í hópa: Yngsta-, mið- og unglingastig. Fjallað um kennsluhætti sem samrýmast aðalnámskrá, inntaki og einkum aðferðum hennar. Þátttakendur fá innsýn í hvernig nemendur þróast áfram í stærðfræðiskilningi og fjallað er um mismunandi lausnaleiðir þeirra. Hugmyndir um kennsluáætlun og námsmat kynntar. Umræður Þátttökugjald: 0 kr.

Slide 15

13. Rathlaup Markhópur: Allir kennarar sem hafa áhuga á að kenna nemendum sínum spennandi íþrótt utandyra. Hentar sérstaklega íþróttakennurum og kennurum sem sjá um eða stunda útikennslu. Tími: 10. ágúst kl. 8:30 – 15:20 Staður: Laugarnesskóli Fjöldi kennslustunda: 8 Kennari: Guðmundur Finnbogason, kennari í Laugarnesskóli ásamt öðrum Lýsing: Þátttakendur læra öll grunnatriði í Rathlaupi, hvernig íþróttin virkar, kortagerð og fjölda æfinga sem að nýtast í byrjendakennslu. Þátttakendur munu spreyta sig í einföldu rathlaupi á sérstöku rathlaupskorti. Stefnt er að því að þátttakendur geti farið í skólana og sett upp einfaldar rathlaupskeppnir fyrir nemendur auk þess að geta æft sig í íþróttinni og útbúið það grunnefni sem þarf til. Námskeiðið fer fram bæði utan dyra og innan. Þátttökugjald: Líklega 5.000 kr.

Slide 16

14. Samtalsfærni Markhópur: Allir kennarar Tími: 10. ágúst kl. 8:30 – 12:20 Staður: Hagaskóli Fjöldi kennslustunda: 5 Kennari: Nanna K. Christiansen verkefnastjóri á MSR Lýsing: Farið yfir helstu áherslur samtalsfærni/viðtalstækni sem stuðlað geta að auknu faglegu öryggi kennara í foreldraviðtölum. M.a. fjallað um helstu hindranir í samskiptum við foreldra, um erfið foreldraviðtöl og bent á leiðir til að takast á við vandann. Fyrirlestur, æfingar og umræður. Þátttökugjald: 0 kr.

Slide 17

15. Kennsluforrit Námskeið um notkun kennsluforrita sem eru opin á vefnum Markhópur: Allir kennarar Tími: 10. ágúst klukkan 8:30 – 13:00 Staður: Hagaskóli - tölvustofa Fjöldi kennslustunda: 6 Kennari: Gry Ek Gunnarsson kennari í Laugalækjarskóla Lýsing: Kynning á ókeypis kennsluúrræðum á Internetinu Gry mun leggja áherslu á að kynna nokkuð ítarlega tvö eða þrjú verkfæri sem hún færir sér í nyt í kennslunni og benda kennurum á nokkur vefsetur þar sem kennarar geta nálgast skemmtilegan hugbúnað sem nýtist vel til kennslu. Gry hefur mjög viðamikla reynslu af því að nota upplýsingatækni í fjarkennslu á norsku og nýtir margvíslegan opinn hugbúnað í starfi sínu. Þátttökugjald: 0 kr.

Slide 18

16. Moodle Markhópur: Allir kennarar Tími: 9. ágúst kl. 8:30 – 12:20 Staður: Hagaskóli - tölvustofa Fjöldi kennslustunda: 5 Kennari: Ágúst Tómasson kennari í Vogaskóla Lýsing: Kynnt verður námsumsjónarkerfið Moodle, sem er heildstætt kerfi fyrir vistun kennsluefnis, gagnvirk próf, umræðutorg, wiki-síður, verkefnaskil og spjall. Kennd verða frumatriði í því að hlaða upp kennsluefni og búa til verkefni og skyndipróf. Í framhaldi af því munu þátttakendur fá aðgang að sínum eigin áföngum á netnam.reykjavik.is þar sem þeir þróa áfram kunnáttu sína og njóta ráðgjafar og handleiðslu Menntasviðs. Þátttökugjald: 0 kr.

Slide 19

17. Word og PowerPoint Markhópur: Fyrir kennara sem vilja kunna enn betur á þessi forrit og efla sig í hagnýtri notkun þeirra Tími: 9. ágúst kl. 13-16:30 Staður: Hagaskóli - tölvustofa Fjöldi kennslustunda: 4 Kennari: Guðrún Hjartardóttir fjölmiðlafræðingur og verkefnastjóri á MSR Lýsing: Farið verður í helstu atriði sem kemur sér vel að kunna enn betur í dagsins önn, uppsetningu texta, myndræna framsetningu, töflugerð, innsetningu tengla o.m.fl. Þátttökugjald: 0 kr.

Slide 20

18. Word og PowerPoint Markhópur: Fyrir kennara sem vilja kunna enn betur á þessi forrit og efla sig í hagnýtri notkun þeirra Tími: 11. ágúst kl. 13-16:30 Staður: Hagaskóli - tölvustofa Fjöldi kennslustunda: 4 Kennari: Guðrún Hjartardóttir fjölmiðlafræðingur og verkefnastjóri á MSR Lýsing: Farið verður í helstu atriði sem kemur sér vel að kunna enn betur í dagsins önn, uppsetningu texta, myndræna framsetningu, töflugerð, innsetningu tengla o.m.fl. Þátttökugjald: 0 kr.

Slide 21

19. PowerPoint Markhópur: Fyrir kennara sem hafa einhverja reynslu af notkun forritisins, en vilja kunna enn betur að nýta sér möguleika þess Tími: 11. ágúst kl. 8:30 – 11:30 Staður: Hagaskóli - tölvustofa Fjöldi kennslustunda: 4 Kennari: Guðrún Hjartardóttir fjölmiðlafræðingur og verkefnastjóri á MSR Lýsing:Farið verður í helstu atriði sem kemur sér vel að kunna enn betur við notkun PPT, heppilega framsetningu, myndræna möguleika, tengingar, gerð mastera o.m.fl. Þátttökugjald: 0 kr.

Slide 22

20. Að mennta gegnum myndlist Markhópur: Allir kennarar Tími: 11. ágúst kl. 8:30 – 12:20 Staður: Hagaskóli Fjöldi kennslustunda: 5 Kennari: Gunnhildur Ólafsdóttir myndmenntakennari í Hagaskóla Lýsing: Skoðað hvernig nálgast má samþættingu list -og bókgreina. Myndlist er ekki endilega markmið í sjálfu sér heldur allt eins tæki til að kenna aðrar námsgreinar. Einnig skoðað hvernig og hvort hægt er að auka færni í sjónrænum kennsluaðferðum til að mennta í gegnum myndlistina. Þátttökugjald: Líklega 1000 kr. efnisgjald.

Slide 23

21. Lesið í skóginn Markhópur: Allir kennarar Tími: 10. ágúst kl. 13 – 15:50 Staður: Hagaskóli Kennarar: Ólafur Oddsson, Brynjar Ólafsson, Anna Skúladóttir og Rannveig Andrésdóttir Lýsing: Kynntar leiðir til að efla skógartengt útinám og þverfaglegt samstarf vegna uppbyggingar á aðstöðu til útináms í grenndarskógum. Einnig kynntar nytjaáætlanir grenndarskóga og notkun þeirra í skógartengdu útinámi. Þátttökugjald: 0 kr.

Slide 25

Vonarsjóður Verkefna- og námsstyrkjasjóður Kennarasambands Íslands Aðild að sjóðnum eiga kennarar og skólastjórnendur í grunnskólum. Starfsmenntunarstyrkir, endurmenntun innanlands og utan: Námskeið/ráðstefnur/kynnisferðir allt að 200.000 kr. á tveggja ára tímabili. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað á heimasíðu KÍ; http://ff.ki.is/pages/725  

Slide 26

Endurmenntun kennara Vinnutími kennara í fullu starfi skal vera 40 klst. á viku til jafnaðar yfir árið. Vikuleg vinnuskylda hans er 42,86 klst. á viku miðað við 37 vikna starfstíma skóla. Undirbúningsdagar fyrir upphaf og eftir lok starfstíma skóla eru samtals 8, sbr. 2.1.5.2. Að auki eru 150 klst. til endurmenntunar og undirbúnings, sbr. 2.1.6.4.

Tags: education ict icelanda

URL:
More by this User
Most Viewed
Previous Page Next Page
Haustsmiðja kennara - Flosi
Haustsmiðja ...
 
 
 
Previous Page Next Page